<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d8223703\x26blogName\x3dSkotta\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://skottalitla.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://skottalitla.blogspot.com/\x26vt\x3d1989307628212462218', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
bullið mitt
Skotta
þriðjudagur, október 31, 2006
Auglýsing Auglýsing!!!
Jæja, þá er alveg að koma að þessu!
Kaffi Vín partýið mikla verður núna á laugardaginn, 11. nóvember, og það er sko mikið búið að gera til að hafa kvöldið sem skemmtilegast.

Við ætlum reyndar að byrja kl 15:30, með kana- og skákmótum, verðlaun verða veitt fyrir fyrstu sætin um kvöldið.

Partýið byrjar um 20, og það verður ótrúlega margt um að ske :D
Lukkuhjól
Skotrúlletta
Tilboð á barnum
Nýstárlegt uppboð
Limbó- en ekki hvað? ;)
Slide-show frá gömlum Kaffi Vín augnablikum ;)

Og verðlaun og viðurkenningar fyrir ýmislegt!

Ef þið eigið myndir sem þið viljið hafa í slide-showinu, látið mig þá vita :)

Allir fasta kúnnar sem við mundum eftir fyrr og síðar hafa fengið e-mail, sms eða símtal og lítur út fyrir að það verði góð mæting og mikið fjör!

Sjáumst á laugardaginn :)
 
mánudagur, október 23, 2006
Raggi er kominn heim!!!
Ú je!!! Kjellinn kom heim í nótt, mikið rosalega var gott að sjá hann! Við erum alveg búin að ákveða að næst förum við saman út, ekki í sitthvoru lagi :)

Hann kom með fullt af nammi, ilmvatn handa mér, og MP3 spilara :) sem er bleikur og ógeð dúllulegur!!! Núna verður fjör hjá mér í gönguferðum :)
Svo keypti hann dót handa Sigga, sem Siggi Hrafn verður öruggleg adauðhræddur við... Það er svona Tigger sem hoppar og skoppar (að sjálfsögðu) og syngur líka, mæ ó mæ!

Annars var helgin mín án Ragga bara ágæt, fór og datt í það með Atla, Eyjó, Ölmu og Snorra á föstudaginn, ég er bara svo léleg að djamma að mig langaði heim um leið og við komum á Laugaveginn, og dró Atla með mér á Devito's og svo heim að borða pizzu :P

Á laugardeginum, þegar ég vaknaði alein og yfirgefin! Var ég eitthvað að stússast inni í eldhúsi, taka til eftir fyllibytturnar og svona, þegar ég heyrði SUÐ!!! og það var HUGEASS fokking geitungur í glugganum!!! HA? Það er október og búið að vera frost og læti! ÉG er svo mikil hetja að ég spreyjaði kvikindið bara og setti glas yfir, geggjað stolt yfir fyrsta geitungadrápinu mínu ;)
5 mín seinna var annað svona kvikindi mætt, í sama glugga! OJBARA! Spreyjaði það helvíti líka og setti undir sama glas og bróður sinn. Þeir eru enn í glugganum til sönnunar um hetjudáðir mínar :D Og ég er búin að loka öllum gluggum aftur ;) þangað til það fer að snjóa að minnsta kosti :)

Fór svo til mömmu seinna á laugardeginum, og var þar í góðu yfirlæti þangað til sunnudagskvöld, þá náði Atli minn í mig og við fórum á kaffihús, sem var frekar erfitt af því að allt var fullt alls staðar!!!

Sjitt, hvað það er annars orðið kalt, brrrr, það sökkar svo feitt að vakna í svona kulda, ég er greinilega ekki vetrarmanneskja. Finnst myrkrið í lagi, nema kl 7 á morgnanna, það er kósí á kvöldin. En damn hvað það er kalt!!!

Svo vil ég benda á "Jól í skókassa" eins og hún Berglind. Við á þessu heimili verðum pottþétt með, þetta er bara falleg og hugsun og fínt að komast í rétta jólagírinn svona :) Allir með 1-2-3 :)
 
mánudagur, október 16, 2006
Löt
Ég er svo löt við að blogga... Alt við það sama. Styttist í London ferð Ragga, megi hann skemmta sér :)

Fór til Siggu Lilju síðasta laugardag, s.s. 7. okt., myndir hérna:)
Kvöldið byrjaði rólega með mér, Siggu, Berglindi, Höllu og Erlu að sitja og spjalla... Endaði í húrrandi fylleríi og myndaæði hjá mér, Bebe og Siggu ;) MIKið fjör, fyndnar myndir :D

Svo var afmæli hjá Maríönnu í gær, á Glaumbar. Mikið stuð, vorum ekkert lengi á Glaumbar, fórum á The Stick og Sólon, djamm næstum eins og í gamla daga, bara *aðeins* rólegra ;) Myndir af því kvöldi seinna, núna þarf ég að fara í háttinn.


Nýjar myndir á Pjakknum líka, kvittið í gestabókina þar!

Góða nótt,
Brynja prinsessa ;)
 


Gestabókin

Myndaalbúmið

Aðrir bloggarar

Smáfólkið

Myndaalbúm

Ég skoða

Gamla dótið

09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007