<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://draft.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d8223703\x26blogName\x3dSkotta\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://skottalitla.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://skottalitla.blogspot.com/\x26vt\x3d1989307628212462218', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
bullið mitt
Skotta
föstudagur, febrúar 24, 2006
STOLIÐ STÖFF!!!
Sá þetta á bloggsíðu beibanna...

Hvaða lag var á toppnum í BNA daginn sem ég fæddist?
Viljiði ekki vita það?

30. nóvember 1984 - "Wake me up before you go go" by Wham!

10 árum seinna, eða:

30. nóvember 1994 - "On Bended Knee" by Boyz II Men ...w00t???? hvað er það, skilrrrru?


Svo er ekki komið 2005 inn í þetta, gæti svo sem gáð á Billboard, en ég nenni því ekki :p

Endilega tjékkið á þessu, bara fjör :) Siðan er HÉRNA

KOmmentið svo og segið mér hvaða lag var á þínum degi :)
 
þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Núverandi...
Fékk þetta í emil... nenni ekki að blogga ;)


Núverandi föt: Svörtu buxurnar úr Kiss, víðar og góðar, blúndubolur, nærbuxur, bh


Núverandi hár: Í tagli og spennum, líflaust og leiðinlegt

Núverandi pirringur: Ekkert held ég barasta...

Núverandi lykt: VS; Strawberries and champagne

Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Ganga frá eftir morgunmatinn

Núverandi skartgripir: Trúlofunarhringur

Núverandi áhyggja:Fuglaflensa, samt ekkert alvarlegt

Núverandi uppáhalds leikari: Oooohhh... Depparinn bara

Núverandi löngun: Mig langar í ciabatta með sinnepi, hráskinku, osti, tómötum og káli... Kókómjólk... Fullt af pening... Ný föt...


Núverandi tónlist: Sigurður Hrafn er að syngja fyrir mig ;)

Núverandi ósk: að Siggi verði alltaf svona hraustur og flottur og hamingjusamur... að ég geti farið í dagskóla í haust


Núverandi texti á heilanum: ;) Til hamingju Ísland, með að ég fæddist hér... hehe

Núverandi eftirsjá: Engin stór, man ekki eftir neinu...

Núverandi display pic: Að sjálfsögðu er það falleg mynd af syni mínum :)

Núverandi áætlanir fyrir kvöld: Ég ætla að reyna að fara í bíó með 2 af mönnunum mínum, Ragga og Atla... :) Er ekki búin að fá pössun samt

Núverandi vonbrigði: Ekkert

Núverandi skemmtun: Siggi að syngja :p

Núverandi msn manneskjur sem ég er að tala við: Raggi og Alma

Núverandi ást: Siggi, Raggi, Vífilsgata... Vinkonur mínar og vinir... Fjölskyldan... Á nóg af ást til að dreifa ;)

Núverandi manneskja sem ég forðast: Nokkrir draugar fortíðarinnar, since waaaaaay back then...

Núverandi hlutir á veggnum: Jiiii, það er ekkert komið á veggina hérna! Nema í herberginu hans Sigurðs, og það er Bangsímon-borði



Núverandi uppáhalds bók: Rosa margar... núna er ég að lesa Chronicles of Narnia... les mun minna núna en fyrir barnsburð :s


Núverandi uppáhalds mynd: Var að horfa á Serenity, sem rokkar... svo Wayne's World, Little Rascals, Clueless...

Núverandi uppáhalds hljómsveit: ummm... er Robbie Williams hljómsveit? Jagúar eru kúl, BSB :D Alice in Chains


Núverandi uppáhalds þáttur:: Lost, Despó, Supernatural (tremmatöff), svo er FRiends UPPÁHALD of all times :D

Núverandi uppáhalds lag: Til hamingju Ísland, er samt að fá gubbuna...

Núverandi lag sem þú hlustar á: Veit ekki, skil ekki bullið í Sigga


Núverandi hlutur til að vera stolt af: Er ofur stolt af því að hafa búið til svona fullkomið barn :) og að passa í LEVI's buxurnar ;p

Núverandi pæling: Af hverju ég gefi barninu mínu ógeðslega illalyktandi mauk að borða, í hvaða föt ég eigi að fara út....


Takk fyrir það, ég er löt... Blogga seinna

HAfið það gott blómin mín

...out!
 
föstudagur, febrúar 10, 2006
See ya :)
Jæja, þetta er síðasti póstur héðan úr Bólstaðahlíðinni!!!
Við flytjum á morgun, og erum búin að smala saman fólki í flutninginn :) Bjór er alltaf pottþétt leið til að fá hjálpara ;)

We're out of here!!!!!!!
Nett blendnar tilfinningar með það, en ég er voða kát yfir því að vera að flytja :D

Fáum vonandi netið bara snemma í næstu viku... skrifa þá og set inn myndir af íbúðinni okkar :)

Hafið þið bara gott öll saman...


...out!
 
fimmtudagur, febrúar 09, 2006
on another note... :)
Buff sweetie
You scored 50% masculine, 64% athletic, 27% exotic, and 56% refined!

You like a buff guy with a clean and polished look. However, you do
prefer a more innocent look to him and not the testosterone pumped
manly man kind. Someone you might like is.......Brad Pitt. (At least in
this picture - his style changes so much it's hard to generalize about
Brad) But let's face it, the whole point of this was to look at a bunch
of hot guys. If you liked what you saw, please rate my test!



My test tracked 4 variables How you compared to other people your age and gender:
free online datingfree online dating
You scored higher than 38% on masculine
free online datingfree online dating
You scored higher than 53% on athletic
free online datingfree online dating
You scored higher than 18% on exotic
free online datingfree online dating
You scored higher than 76% on refined
Link: The What type of MAN turns you on Test written by thinkandcome on Ok Cupid, home of the 32-Type Dating Test
 
mánudagur, febrúar 06, 2006
Gugga dagMAMMA
Um helgina voru 5 ár frá því að ég og Auður stóðum í litlu herbergi á Landspítalanum og horfðum á Guggu okkar liggja meðvitundarlausa og hvítgula í litlu rúmi. Ég man svo vel eftir hryglunni í andardrættinum... djöfullegt...
Við stóðum og héldum í hendurnar hennar og ég gat ekki sagt neitt, sem betur fer er Auður meira í tilfinningatalinu, og hún sagði Guggu að við elskuðum hana, að við vonuðum að henni liði bráðum betur...
Ég vonaði að þá myndi Gugga bara koma heim og allt myndi lagast, en ég vissi að til að henni myndi líða betur þyrfti hún að fá að fara, ég hugsaði til hennar að það væri í lagi, ég skildi hana og elskaði, myndi sakna hennar og hugsa til hennar.

Samt brá mér þegar síminn hringdi snemma um morguninn 6. febrúar 2001, og Auður sagði mér að Gugga okkar hefði kvatt heiminn. Guð, hvað ég öskraði og grét, ég hékk í mömmu og hélt ég myndi springa af sorg!
Af einhverjum ástæðum ákvað ég að fara í skólann, ég þurfti að fara með fyrirlestur í dönsku og fullvissaði mömmu um að ég og stelpurnar sem voru með mér í hóp myndum falla ef ég mætti ekki... Hvað maður getur stundum verið klikkaður :/
Ég fór í skólann, sagði stelpunum fréttirnar og var bara róleg... Svo hitti ég Berglindi á Marmaranum, og þá brast hugrekkið, ég fór að háskæla, Berglind dró mig út og hélt utan um mig, fór svo með mig upp á skrifstofu og sagði konunum þar að ég þyrfti að fara heim, núna!

Ég hringdi í pabba, sagði honum fréttirnar og hann kom og sótti mig, við keyptum súkkulaði og hann skutlaði mér heim til Auðar...
Ég man ekki hvað við töluðum um, eða hvort við höfum talað eitthvað... Dagurinn er bara ein móða, og sárt að hugsa aftur. En ég veit að við fórum upp á Barónsstíg til Smára, og sátum þar með honum og Fjólu, kannski voru fleiri, en ég man eftir þeim þarna.

Ég man samt að sólin skein allan þennan dag, alveg eins og í dag, og það var gott að vera úti... Mér fannst það huggun, eins og sólin væri þarna til að bjóða Guggu velkomna.


Eftir þetta var ég bara róleg, sýndi ekki sorgina mikið nema við kistulagninguna og í jarðarförinni, þá var ég grátandi allan tímann og get ekki talað við neinn, sneri mér undan þegar fólk sem Gugga hafði passað fyrir og ég þekkt lengi reyndi að faðma mig og hugga, eða leita huggunar.

Þetta var mikið sjokk fyrir alla, það bjóst enginn við því að Gugga myndi nokkurn tímann deyja, hún var alltaf til staðar og gerði allt fyrir alla, og alltof oft fékk hún ekki einu sinni þakklæti í staðinn.
Hún var svo góð og átti svo mikla ást fyrir öll börnin sem hún “átti”, fjölskylduna sem sniðgekk hana langoftast og fyrir vini sína sem margir gáfu henni bara skít og komu henni í vandræði.


Eftir jarðarförina fékk ég að vita að Gugga hefði verið veik lengi, og ekki sagt neinum frá því, nema einni manneskju sem sá ekki ástæðu til þess að segja Smára eða neinum frá þessu. Góð vinkona það!?! Bara af því að hún var ekki á landinu fannst henni í lagi að leyfa Guggu að deyja einni?
Gugga vissi í 10 ár að hún væri að fara að deyja, og átti þetta leyndarmál ein með sjálfri sér og gerði ekkert, drekkti sér bara alltaf lengur og lengur í vodkaflöskunni.
Hún reyndi enga lækningu, var bara heima með dauðadóm á bakinu.
Það er ekki skrítið þá að hún hafi drukkið, ég get ekki ímyndað mér hverju þungt þetta hefur legið á henni, og alltaf kaus hún að þegja og blanda sér meira í glasið.

Gugga átti svo erfiða ævi, ég vorkenndi henni alltaf svo mikið. Samt var hún svo dugleg og lét aldrei erfiðleikana sína bitna á börnunum eða foreldrunum, bara sér og þeim sem elskuðu hana mest...


Sorginni eftir andlát Guggu er ég ennþá að vinna úr, þetta hefur eitrað líf mitt of lengi, ég er bara svo vanmáttug gangvart eigin tilfinningum.
Í langan tíma var alveg sama hvað allir reyndu að gera fyrir mig, eða sögðu... Mér fannst enginn geta skilið það að þegar að Gugga dó missti ég móður, ég var svo eigingjörn að ég hætti að virka almennilega.
Stakk mér inn í nýjan vinahóp, djammaði og djúsaði og skemmti mér vel. Setti skólann í allra seinasta sæti. Talaði ekki við fjölskylduna mína, fannst þau svo ömurleg, skildu þau ekki neitt? Mér leið ömurlega allan þennan tíma, en brosti alltaf og grét ekki, nema þegar við mamma rifumst og mér fannst hún ósanngjörn.
Ég var þunglynd og erfið, fór til sála og geðlækna, ég vildi bara ekki hjálp.
Alltaf þegar að það kom eitthvað eða einhver nýr inn í líf mitt fannst mér það eða sú manneskja vera að bjarga mér, Gugga var ekki tengd þessu nýja. Það var ekki verið að minna mig stanslaust á hana. Ég og Auður hættum að tala um Guggu þegar við vorum saman, nema þegar við fórum upp í kirkjugarð eða vorum hjá Smára.

Svo kom Raggi, og þá leið mér vel... Eins vel og áður, og í hjartanu líka. Ég vissi að þarna væri ég að komast á rétta braut, það tók samt tíma fyrir mig að finna hana alveg.
Ég enduruppgvötaði fjölskylduna mína, mömmuna sem ég á og pabba, þau voru bæði þarna ennþá og þau er bæði jafn góð og áður en Gugga dó. Og þau elska mig, þrátt fyrir öll leiðindi og vesen.
Ég sá að gömlu vinkonurnar voru þær bestu og finnst æðislegt að hitta þær og vera með þeim, þær muna allar eftir Guggu :)

Ég skil núna að það sem var að, var ekki bara það að Gugga dó. Ég var líka svo reið við hana, alheiminn og Guð...
Hvernig gat hún gert okkur þetta? Undirbúið dauða sinn í 10 ár og svo bara farið allt í einu?
Af hverju sáum við ekki að hún var ekki bara alkóhólisti? Hún var líka líkamlega veik, og enginn sá það? Erum við öll svona heimsk og blind?

Mér er runnin reiðin...


Ég er hamingjusöm núna...


Ég vildi bara óska þess að Sigurður hefði haft tækifæri til þess að fara í pössun til Guggu, eins og við ákváðum þegar ég var svona 5 ára.
Ég vildi bara að Gugga hefði séð hann nýfæddan og getað haldið á barnabarninu sínu.
Ég vildi bara að Gugga hefði komist í skírnina og verið stolt af mér...

Eða... ég vildi að ég hefði getað séð hana við öll þessi tækifæri, ég veit að hún var þarna, og er hérna... Hún verður alltaf hérna...


Við Auður ætlum að láta útbúa fallegan stein til að setja á leiðið hennar Guggu í sumar, ég hlakka til :)


Gugga, í dag ætla ég að vera leið, en annars þarf ég þess ekki lengur. Ég elska þig og sakna þín, og ég hlakka til að sjá þig aftur eftir mörg, mörg, mörg, mörg ár...
 


Gestabókin

Myndaalbúmið

Aðrir bloggarar

Smáfólkið

Myndaalbúm

Ég skoða

Gamla dótið

09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007