<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d8223703\x26blogName\x3dSkotta\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://skottalitla.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://skottalitla.blogspot.com/\x26vt\x3d1989307628212462218', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
bullið mitt
Skotta
þriðjudagur, ágúst 15, 2006
Eitt ár í móðurhlutverki!!!
Á morgun kl 14:32, verða komnir 12 mánuðir frá því að Sigurður Hrafn leit dagsins ljós í fyrsta skipti. Mér finnst það magnað!

Ég man varla eftir þessu litla kríli, hann er orðinn svo stór!




Ég verð að vinna á morgun, í nýju frábæru vinnunni minni :D En ég get vaknað með stráknum mínum og komið honum í pössun, og svo gerum við eitthvað hrillilega kósí og væmið þegar ég er búin að vinna :)

Úff, já... 1 árs, alveg hreint ótrúlegt

Siggi Hrafn á Sigur Rósar tónleikum á Miklatúni

Ok, farin að hvíla mig, vinna í fyrramálið, og mín er frekar þreytt eftir fyrstu 2 dagana ;) It's no walk in the park working with many, many screaming kids all day ;)
En það er samt æði, bara svo það sé á hreinu :)

Kjósiði Magna fyrir mig, ég meika ekki að horfa núna. ZzzZzzzzZZzzzZ...
 
fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Er hún til?
Bara smá pæling...

Búið að lesa svo mikið um Suri Cruise, og hvort hún sé til eða óléttan hafi verið plat frá a-ö...

Mér finnst þetta aðallega fyndið, og efast stórlega um að það sé ekkert barn, en fólk er mikið að rökræða þetta úti í heimi, og á beibílend púnktur is

Gossip hórurnar

Hollíwúdslúður

Hvar er Suri?

Óléttan skoðuð

Bannað að hjala við og knúsa barnið!

Jah, ég veit ekki...

Er Krúsarinn bara svona innilega geðveikur, að hann fái fólk með sér í svona skrípaleik? (Maðurinn er klikkaður, það er ekki spurning)

Eða er þetta svona hjá strangtrúuðu fólki í Vísindakirkjunni?


Svo er einn linkur sem er soldið skemmtó ;) hérna

What do you guys think?


E.S. Svo setti ég inn DK myndir áðan hérna, reyndar líka búin að setja inn einhverjar gæsunar myndir, klára þær og brúðkaupsmyndir við tækifæri. :)
 
Komin heim :)
Lentum allar í ehilu lagi á mánudagskvöldið, þrátt fyrir smávægilega erfiðleika á hverju stoppi frá Nörrebro til Keflavíkur, flesta hægt að rekja til Auðar hinnar fögru ;)

En vá, það var svo gaman og kósí og æðislegt hjá okkur!
Bara snilld að vera hjá honum Jóni Dúdda frænda, stutt í allt og flott íbúð og næsheit.

Fórum að sjálfsögðu á Strikið og versluðum og drukkum bjór, fórum í Tivoli, og þá kom eina rigningin sem ég lenti í, alvöru hitabelstisskúr sem rennbleytti okkur allsvakalega!!!
Fórum líka í dýragarðinn sem var voða gaman, fórum alltaf út að borða, misfínt og misgott, en aldrei fengum við vondan mat...

Á sunnudeginum fórum við í Fisketorvet, það er mjög stórt mall, en Fields er enn stærra, ég er glöð að ég fór ekki þangað!!! Náðum nógu litlum hluta af búðunum þarna!

Þrátt fyrir mikla bjórdrykkju, og Malibu flöskuna sem við keyptum í sjoppunni, fórum við aldrei á djammið, vorum allt of mikið að hafa það gott til að nenna á eitthvað pöbbarölt eða dansiböll ;)

Ég hefði líka getað eytt miklu meiri pening, en er sátt með það sem ég kom með heim :) Handa okkur öllum 3.

Og mikið svakalega var gott að sjá Sigga Hrafn minn á þriðjudagsmorgunn þegar mamma skilaði honum heim!!!
Ég bara skældi og kyssti hann endalaust og hann hló og hló :) Dúlla!

Svo mæti ég bara í vinnuna á mánudagsmorgunn kl. 9, þá fer Siggi í pössun til frænkna sinna, og svo til ömmu og svo bara til þeirra sem nenna og geta til 31. ágúst! *blikkblikk*

Ég er búin að opna síðuna hans Sigga á barnaneti aftur, loksins mundi ég það!

Allar myndirnar okkar eru samt á borðtölvunni og ég kemst of sjaldan í hana í nógu mikinn tíma, reyni samt að flýta mér að setja myndir inn, bæði hjá mér og litla kút.
Verð sko að monta mig af góða veðrinu í Köben, bara 25 stig og upp úr, blankalogn og sólskin :)

Later
 
þriðjudagur, ágúst 01, 2006
I'm going home!!!
To the city I was born in :)


Flýg á morgun kl 17:15, get ekki beðið!
Gengur vel að pakka, allt að koma, enda er Siggi Hrafn hjá mömmu núna þannig að ég þarf ekkert að hugsa um hann.

Ooooh, stelpurnar voru að hringja, bara að segja hæ! sátu í skugga á bar nálægt Strikinu,

aðeins að hvíla sig... Það er voða gott veður í Köben núna og þær eru eitthvað ekki að meika að versla í þessari sól ;)

Það verður geggjað! Núna er voða gott veður, vona að veðurspáin rætist ekki og að það byrji að rigna um leið og ég mæti hress og til í að njóta mín! Krossum öll fingur og vonum að Brynja fái sól, takktakk :D

En hvort sem það verður rigning eða sól, mun ég samt fara í Tivoli, kannski dýragarð, versla og fá mér bjór á Nyhavn! Og ekki óáfengan bjór núna! haha!!!

Best að halda áfram að þrífa og svona, sjáumst eftir verslunarmannahelgi, hafið það gott!!! Og góða skemmtun í Eyjum, þið sem eruð það heppin að geta farið þangað!


Köben kallar

 


Gestabókin

Myndaalbúmið

Aðrir bloggarar

Smáfólkið

Myndaalbúm

Ég skoða

Gamla dótið

09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007