<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d8223703\x26blogName\x3dSkotta\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dSILVER\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://skottalitla.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://skottalitla.blogspot.com/\x26vt\x3d1989307628212462218', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
bullið mitt
Skotta
mánudagur, september 25, 2006
öpdeit
Búin að taka til í tenglalistunum mínum, þið sem bloggið ekki eruð dottin út!
Aðrir bloggarar komnir inn í staðinn, kannski hef ég gleymt einhverjum...

Nýtt barn í flokknum Smáfólk, það er hann Júlli Jóh, sonur Bjargar úr Austó :)

Annars er ég bara heima með lasinn strák :( Siggi Hrafn er með eyrnabólgu í hægra eyra og augnsýkingu í báðum augum!
Hann er nokkuð hress en svaf illa í nótt þannig að hann fékk að vera heima með mömmslu :P

Soldið súrt að vera heima, alveg hress og komast ekkert út í svona gott veður :/

Síminn minn er enn bilaður, eða allavega ennþá á verkstæði... Þannig að það bauð mér enginn í klikkað partý um helgina *hósthóst*

Raggi er að fara til UK í október, 19. til að vera nákvæm. Og ekki til að nördast eða djamma, heldur til að skoða skóla sem hann hefur áhuga á.
Ef honum lýst á erum við að flytja til Bretlands (ef hann nær inn, sem er allt útlit fyrir), en ekki fyrr en eftir svona 2 ár...
I know, geðveikt langtíma plan, en svona er þetta þegar maður er skuldbundinn af svona mörgu :)
Mig hlakkar allavega geggjað til ef þetta er töff skóli :D

Siggi Hrafn augngröftureyrnabólgus er vaknaður, later!

...out!
 
föstudagur, september 22, 2006
Bömmer
Síminn minn er bara búinn að bræða úr sér, samt ólíklegt þar sem ég nota hann ekki mikið (á enga vini), hann allavega bara hætti að virka og vildi ekki vera til lengur.
Þannig að Raggi fór með símadrusluna í viðgerð, og ég vona að ég fái hann nú fljótt aftur svo að allir vinir mínir *hósthóst* geti haldið áfram að hringja í mig og bjóða mér í partý *hósthóst*

Þangað til virkar heimasíminn minn fínt :) Ennþá að minnsta kosti...

Það er bara ekki neitt að frétta annars, veikindi upp á leikskóla, ælupest, kvef og skemmtilegheit.

Og ég á að mæta eftir 25 mín, þannig að ég ætla að fara að klæða mig í skó ;)

later
 
sunnudagur, september 17, 2006
Haustkvef :(
Öll 3 búin að vera kvefuð og asnaleg undanfarið, Siggi Hrafn fór ekki einu sinni til dagmömmu á fimmtudag og föstudag af því að hann var svo lasinn.

Hóstum saman í kór og erum sæt :)

Alltaf gaman í vinnunni hjá mér, er svo að hafa það gott þarna með öllum krílunum.
Voða gott að losna að heiman, ég er ekki heimavinnandi týpan, verð að þurfa að mæta eitthvað á morgnanna ;)

Við erum bara dugleg að nota sunnudagana í fjölskyldu-activities, og kvöldmatartímann.

Annað er ekki að frétta, það er allt búið að vera mjög einsleitt síðan vinnan byrjaði, er líka alltaf að vinna hér heima með Sigga og húsverkin þarf víst að gera þó að enginn nenni :s
Ekki mikil orka eftir þá, fer bara á kaffihús eða ligg yfir sjónvarpinu, nennti samt ekki að horfa á Rocktar:SN (hvað heita þeir núna? SuperNova nafnið var víst frátekið!) Ég njósnaði bara á netinu áður en ég fór að sofa svo ég vissi hver dytti út alltaf :D Svo horfði ég á endursýningar.



Við Raggi fórum loksins að sjá Pirates fyrir viku, vá hvað okkur fannst hún geðveikt góð! Getum varla beðið eftir 3.

Ekki meira að frétta, nýjar myndir á síðunni hans Sigga Hrafns...

Hlakkar til þegar að næsta tækifæri gefst til að djamma eitthvað, gott partý takk fyrir pent!

...out!
 
fimmtudagur, september 07, 2006
Elsku Bryndís Eva



Hvíl í friði
 


Gestabókin

Myndaalbúmið

Aðrir bloggarar

Smáfólkið

Myndaalbúm

Ég skoða

Gamla dótið

09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
12/01/2005 - 01/01/2006
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
04/01/2006 - 05/01/2006
07/01/2006 - 08/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
01/01/2007 - 02/01/2007
02/01/2007 - 03/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007