*púst*
Sko, þegar ég varð ólétt ákvað ég að ég ætlaði sko ekki að pirra mig á því ef ég kæmist ekki eitthvað skemmtilegt, ef ég t.d. fengi ekki pössun eða þess háttar... Hingað til hefur það verið þannig, mér finnst svo gott að eyða tíma með Sigga Hrafni að mér er sama um flest annað :D Ég vil miklu frekar vera 100% mamma, heldur en þreytt og/eða þunn mamma, eða mamma sem er ekki á staðnum.
En í dag er ég að brjóta þessa reglu, ég er nett svekkt út í heiminn... Við Raggi eigum miða á jólahlaðborð í kvöld, dessið er ready og mig langar svooooo í góðan mat! En Siggi er með ælupest :( OG ef hann verður slappur í kvöld vil ég ekki setja hann í pössun... Og missi þar með af jólahlaðborðinu :(
Mitt val, vil hjúkra stráknum mínum sjálf... En akkurat í dag vildi ég frekar fara á jólahlaðborð með Ragga mínum... Oh well...
Mamma tekur strákinn ef við treystum honum til að fara, vona að hann fari að halda einhverju niðri :)
Annars, bara same old, same old... Erum að byrja að undirbúa jólin, bæði heima og í vinnunni... Það er kominn nettur fiðringur í mann að byrja að skreyta og svona, baka og hafa það kósí... mmmmm....
Jæja, best að fara að knúsa litla lasna kallinn :)