By popular demand...
þá skal ég blogga ;)
Já... Djammið helgina fyrir páska var bara alveg stórkostlegt! Ég skemmti mér konunglega í drunken-scrabble/kjaftagangi með Berglindi, Röggu og Eyjó og einhverjum fleirum á Kaffi Vín (ég vann scrabblið þrátt fyrir að vera alveg á kúpunni.)
Hélt svo á alveg stór skemmtilega tónleika hjá klassahljómsveitinni HRAUN, sem ég vona að standi bara á barmi heimsfrægðar, þeir eru æði, og ég pant fá þá í mitt brúðkaupspartý :)
Þar á eftir fórum við á Sólon, þar sem ég skipti út djammfélögum, og fór á Prikið með Auði og co., sem var bara alltílæ, það er nú stundum gaman á Prikinu :)
En það er hundleiðinlegt að koma einn heima af djamminu... Ég nennti ekkert að fá mér pizzu eða neitt aaaalein... Fór bara að sofa á sófanum ;)
Páskarnir okkar voru æði, ég var bara svaka dugleg í eldhúsinu, eldaði t.d. nautafillet og kartöflugratín, kjúklingabringur og grísasteik. Allt var þetta mjög gott, og við sprengdum okkur alveg :) Fórum í mat til pabba á fös. langa og tengdó á páskadag...
Þannig að páskarnir redduðust þótt að mamma sé í Arizona ;p
Og að sjálfsögðu var sukkað í páskaeggjum og fleira góðgæti, sonurinn fékk samt ekkert svoleiðis.
Ég djammaði ekkert um páskana, ég var alltaf farin að sofa í kringum miðnætti, eitt kvöldið meira að segja kl 22!!!
Raggi hinsvegar djammaði á páskadag, og skemmti sér vel, og var vel fullur, en kom samt heim á skikkanlegum tíma, og fékk að sofa upp í rúmi :p
Svo er ég bara hálfslöpp núna, þreytt og svona leiðindi... Eitthvað vorþunglyndi í gangi :(
En það batnar vonandi á morgun, þá kemur sumarið og við familían ætlum á Þjóðminjasafnið og rölta um bæinn :)
Svo er hérna soldið smá fyrir ykkur að spreyta ykkur á, sérstaklega þið sem eruð að læra fyrir próf :)
Með því að skoða þessa mynd og vera svaka klár að tengja saman myndirnar og hugtök, á að vera hægt að finna 74 hljómsveitanöfn!
Skilda að kommenta og segja hvað maður er búin(n) að finna margar hljómasveitir :)
Set lausnina inn eftir nokkra daga
SUIT UP!