Ástfangin...
Er skrítið að vera dolfallin yfir þessum gæja? :p Hann er bara skemmtilegur! Þetta er stuttu áður en hann meig á mig... Mér fannst það svo fyndið að ég grét úr hlátri á meðan Raggi fór í það að þurrka sófann!!!
Síðasta vika var góð, við vorum dugleg að fara út, þrátt fyrir kulda á fimmtudaginn *brrrrbrrrr*
Fórum líka á mömmumorgun á miðvikudaginn, þar fann ég fyrstu tönnina hans Sigga :D Mikil gleði það...
Fór svo á Vín á fimmtudaginn, það var gott... Hafði ekkert farið út ein alla vikuna, hitti Bergnýju og Ástbjörgu, og það var voða fínt að spjalla bara við þær eina kvöldstund :)
Líka góð tilbreyting frá þessu :
Hehe... ég er svo smart...
Og svo ein af okkur mæðginum
Horfðum á The Man í gær... mér fannst hún bara nokkuð fín, en of lítið *bængbæng* eins og mamma myndi orða það ;) Samt gaman að horfa á Levy og Jackson, þeir voru alveg að virka sko :)
Mér líður mjög vel þessa dagana, er alveg að fíla lýsið og hafragrautinn, er farin að taka fjölvítamín líka, án A og D... Og fer enn að labba, svo er ég alltaf að verða duglegri hérna heima líka :) Endalaus orka alveg :) hehe...
Ég er samt blessunarlega laus við það að eiga vigt, og flest allir í kringum mig, þannig að ég kem mér bara í form á eigin forsendum, til að verða hraustari ekki til að verða XX kg :) Hef ekki farið í viktun síðan í síðustu mæðraskoðun og ég búin að léttast um tonn síðan þá ;) Finn það bara ;)
Verð orðin heví góð í sumar þá get ég leikið mér endalaust við Sigurð Hrafn og það verður stuð!
Svo er á dagskránni að byrja að spara fyrir Danmerkurferð í haust, guð hvað mig langar að komast út!!! Væri draumur að fara til Arizona samt, en það er ekki aaaaalveg að gera sig strax :( Synd, langar að fara að versla föt, drasl og skrappdót!!! :D
En Köben verður bara að vera áfangastaðurinn, og ekki græt ég það :)
Lýsi hér með eftir pari til að koma með, Raggi nennir ekki að hanga aftur í H&M allt fríið ;)
Bjórfélaga handa honum takk, verlsunarfélaga handa mér takk :)
Raggi er að bjóða strákunum heim í kvöld, við Sigurður ætlum að gista hjá mömmu :) Ætlum í bað og borða voða góðan mat og tjilla með kjellunni :)
Komum svo heim í fyrramálið til að stríða Ragga, sem verður væntanlega þunnur ;) Og á eftir að þurfa að taka til! hahahahaha... :D
Ef þið rekist á manninn minn í kvöld, passið hann fyrir mig :) Hann er orðinn að algjörum hænuhaus nebblea ;) En hann skemmtir sér vel það sem hann endist :)
...out!