Heilagur Þorlákur...
Í dag er Þorláksmessa (fyrir ykkur heiladauða fólk) og ég er að klára tiltekt og þrif svo að ekkert þurfi að gera á morgun :)
Svo elda ég, klára að pakka inn gjöfum og svo ætlum við að rölta í bæinn og skoða fólkið, fara svo heim og horfa á jólamynd og fara snemma að sof asvo jólin komi sem fyrst :)
Jólin líta bara vel út núna, snjór (bara mátulega mikið), gott veður, allt klárt og ég er að baka :)
Oh, ég hlakka svo til að fara með Sigurð í bæinn og labba montin með vagninn minn :) hehe...
Og að halda upp á fyrstu jólin hans, þó að hann fatti ekki neitt nema ljósin ;p
Fór í ammliskokkteilboð til Höllu í gær, það var voða gaman, hressar stelpur þar á ferð, eins og alltaf í kringum höllu stínu fínu símalínu :)
Takk fyrir mig krúsla :)
Fékk ammlispakka frá Mardísi, baðdót, voða flott, jólabaðið fullkomnað :)
Oh, jæja, no time for chitchat...
Verð að klára þennan jólaundirbúning og fara svo að leika við prinsinn minn...
Langaði til að óska ykkur öllum gleðilegra jóla, ég vona að þið hafið það öll ótrúlega gott, fáið góðan mat og einhverja pakka :)
Vona líka að þið eigið svona flott jólatré...
Vildi að ég gæti knúsað alla, ég er svo uppfull af ást núna, en það verður að bíða betri tíma...
Þangað til læt ég kallana mína duga
Sjáumst vonandi sem flest um jólin og á milli hátíða og fjölskylduboða
GLEÐILEG JÓL!!!