er fólk ekki í lagi???
ég er alltaf að sjá betur og betur að fólk er bara FÍFL!!!
ég er ekkert sérstaklega bitur út í lífið þessa dagana, er bara hamingjusöm sem aldrei fyrr og hef það gott :) en samt sem áður hef ég verið mikið slöpp og upptekin af skólavinnu og þess háttar... læt ekki svoleiðis stoppa mig :)
það er ekki þar með sagt að ég vilji ekki tala við sumar manneskjur! þegar það er bara hringt í mig á skólatíma þá get ég ekki farið út í eikkað spjall um það hvað "þú" átt erfitt og hvað allir eru vondir við "þig" og of uppteknir til að hitta "þig"!!! þegar ég er ekki á fullu að læra og eyða tíma með manninum mínum eða hjá lækni, þá hef ég ekki orku í að hlusta á bull og væl!!!
því miður... ég vil vera til staðar fyrir vini mína, og reyni það alltaf...
ég gef mér alltaf tíma fyrir ragga og auði, þau tvö eru bara bestu vinir mínir og hafa stórt tilkall til lausa tímans míns... og ef þau eru leið, verð ég það líka... allir aðrir mæta bara rest af orkunni minni... sorry!!!
en ok... það sem ég byrjaði á...
fólk sem heldur að það sé eitt í heiminum með vandamál, fólk sem hefur það virkilega gott en sér það ekki út af eigingirni og sjálfelsku, það á enga samúð hjá mér!!!
allir hafa sín litlu vandamál, og stundum koma upp stór, sem maður vinnur úr með tímanum... en það að fólk haldi í alvörunni að heimurinn stoppi þegar það á "bágt"!!!
það er fólk sem ég get ekki liðið...
ég á ekki lengur jafn margar vinkonur og fyrir jól út af akkurat svona hugsunargangi... og mér líður betur út af því... heimska og eigingirni eru ekki miklir mannkostir í mínum augum...
þannig þegar fólk nennir ekki að líta lengra en niður á tær sér og, æ æ , þar er ekki stór hópur af fólki tilbúið til að hlaupa veröldina á enda fyrir það, þá getur þetta fólk bara átt sig!!! nenni ekki, vil ekki, skil ekki, get ekki er ekki gott hugarfar!
farðu af stað! við viljum ekki heldur! lærðu þá! þú getur ekki nema þú reynir! er það sem ég hef að segja...
takk
...out!