3. júní 2004... aftur
ég elska sumarið! það er uppáhalds árstíðin mín, þó að jólin séu á veturna!!!! á sumrin þykist ég búa í kaliforníu, klæði mig eins lítið og ég get, borða ís, drekk svaladrykki og krapdjús. stundum þykist ég búa í köben og fæ mér bjór kl 3 á miðvikudegi, það er æði svo er ég alltaf úti... þó það sé rigning1 ég held það sé kallað afneitun... á sumrin er ég bara geðveik og bý ekki á ísleandi heldur í mínu bangsalandi þar sem er voða heitt og eiginlega alltaf sól! ég er búin að vera út á palli á stuttbuxum og bikinitopp í mest allan dag... aþþí það er 3. júní og það er sko komið sumar!!!! jei!!!! og ef ég fæ kvef... sem gerist ekki aþþí ég er supergirl... þá er það aþþí ég er með sólarofnæmi eða eikkað... ok?? og á eftir er ég að spá í að draga fram línuskauta og reyna að drepa mig í einhverri brekku hérna í garðabænum! þetta á eftir að vera æðislegt sumar! ég ætla ekkert að liggja yfir tölvunni... bara blogga pínu... annars ætla ég a verða gullinbrún og geggjað flott út af öllum sund og gönguferðunum mínum! að ógleymdum línuskautaævintýrunum sem ég ætla að lenda í um leið og ég læri á þá...! yeah, ég verð svöl... og kannski leyfi ég ragga mínum að fljóta með á þessu dásamlega sumri sem var að byrja í hjarta mínu