28. maí 2004
ég er að flytja... það er ömurlegt! ég er búin að búa á sama stað í sama herbergi í 17 ár... og það er ekkert auðvelt að bara að pakka oní kassa og fara bara! ég þurfti að henda svo miklu dóti sem ég vildi ekkert henda, en er ekki hægt að flytja með... steinum úr fjörunni, litlum myndum og miðum, drasli sem ég er ekki búin að skoða í fleiri ár kannski, en vildi samt eiga! núna þarf ég að koma mér upp nýju safni af ónothæfu drasli til að hnda seinna. en í alvöru samt... það er svo mikið búið að gerast þarna árni frændi fékk gat á hausinn eftir mig, fyrstu vinirnir bjuggu allir í næstu húsum, einn býr meira að segja ennþá fyrir neðan mig! og hann og fjölskyldan hans eru að flytja í mína (mömmu) íbúð núna! og ég þarf að flytja uppí GARÐABÆ!!! kannski verður það gaman... glænýtt herbergi... og núna búum við hjá móðursystur minni, sem er fínt, það er fullt af plássi og stærsta sturta í heimi, heitur pottur og drasl. en... ég á ekki heima þar, heldur fullt af einhverju fólki, sem ég er búin að þekkja alla ævi, en samt... skilur mig eihver??? ég hata að þurfa að vera ekki HEIMA í svona langan tíma, heldur bara í heimsókn... en hey, partý hjá dassa í kvöld, svo vinnan... svo er eikkað voða sniðugt að gerast hjá ölmu beib á morgun... ég ætla að fara að drulla mér út... þetta gengur ekki...