Hamingja og gleði
ríkja enn í Bólstaðahlíðinni :)
allt gengur súper, og mamman er orðin mjó ;)
ég fékk nebblea pumaskó um daginn sem voru ALLTOF þröngir sökum bjúgs :( en það var ok, ég er búin að losna við bjúginn, smá eftir á puttunum, og kemst núna í svaka fína skó :) algjör pæja sko...
annars skrifa ég örugglega meira á pjakkinn á næstunni en hér, allt snýst um hann hvort eðer, hann er flottastur og bestastur :*
en ég hef tekið eftir að síðan hans virkar ekki sem best í internet explorer, surprise, surprise, þannig þið sjáið kannksi ekki allt á síðunni ef þið notið þann vafra...
þá mæli ég með að þið náið ykkur í mozilla, þó ekki sé nema til að sjá myndirnar af pjakknum... ;þ
(svo á að virka að ýta á shift og f4 eða ctrl og f4 þegar maður er inni á síðunni, veit ekki hvort það er rétt...)
látið vita ef þið viljið kíkja á engilinn, ljósan segir okkur tilbúin í gestagang, það gengur allt svo glimrandi :)
brynja mamma
Mættur!
þarna er hann, sonurinn! :) info á síðunni hans...
öllum heilsast vel og við erum heima að hvíla okkur, tökum við gestum bráðum...
takk fyrir allar kveðjurnar og kossana, þið eruð æði...
BRYNJA MAMMA
Versló 2005
var frekar róleg á þessum bæ... :/
ekkert djamm, ekkert partý... en kjellinn fékk bjór svo hann getur ekki kvartað ;)
eyddum laugardeginum í það að versla í matinn og hanga uppi á fæðingardeild, skoða lilluna hennar maríönnu og hittum ástbjörgu líka, sem var bara voða spræk...
en hennar verður ekki opinberuð fyrr en hún fer heim, það má ekki heimsækja á vökudeildina :/ jæja, so be it...
að öllum líkindum verður ófædda barnið mitt komið heim á undan fæddri dóttur ástbjargar og mola... weird... hún heitir sólhildur sonja btw...
litla maríönnu er svo mikið krútt, verður algjör pjattrófa eins og foreldrarnir býst ég við :) en það heilsast öllum vel, sólhildur er í hitakassa og fer í ljós út af gulu, en hún er dugleg að anda og braggast vel og moli og ástbjörg geta haldið á henni núna og allt :) og maríanna og litlan eru komnar heim líka, á eftir að kíkja þangað og sjá hvernig gengur ánljósmæðranna og svona...
núna er ég svo spennt að fá minn að það er ólýsanlegt!!!
er búin að vera að labba mikið og reyna að koma þessu rólega af stað, alvöru aðgerðirnar koma eftir svona viku, þá verður nóg komið og barnið skal út!!! :D hehe
ég fékk 2 gjafir um helgina, harry potter bókina :) og bsb didkinn og dvd :) !!!
takk raggi :) hann sagði að þetta væri svo hann gæti spilað wow í friði :þ ég held að hann sé bara svona góður :)
og að sjálfsögðu er ég búin með harry... :( alltof fljót að lesa! reyndi að halda aftur af mér, fór út, og tók pásur, fór í bað... en hún kláraðist um hádegi í gær, þannig þetta var langt innan við sólarhringinn...
og þið sem eruð enn að bíða eftir amazon sendingunni... þessi bók er geggjað góð!!! :þ mér fannst hún æði, og ég pældi þvílíkt allan tímann sem ég las, og var alltaf hissa með hverjum hnútnum sem leystist... og hún felur mjög vel (fannst mér) hver það er sem deyr...
so... harry potter and the half-blood prnce... read it... you'll laugh, you'll cry, you'll hurl... eridda ekki wayne's world???
massa bók sem ég naut í tætlur, hefði samt viljað 1670 bls í stað 607 ... hehe...
allir sem fóru á þjóðhátíð... þið sökkið!!! langaði svo, var alltaf að hugsa, núna er brennan, núna er flugeldasýning, núna gæti ég verið að borða reyktan lunda eða kjötsúpu á lundanum... og náttlea brekkusöngurinn... *dæs*
sem minnir mig á það... það er bara komið ár síðan við raggi trúlofuðum okkur :) vá...
og ég hefði sko alveg viljað vera veðurteppt í eyjum ef ég hefði komist á þjóðhátíð... og ég er ekki útilegu týpan... bara þjóðhátíðar ;)
þjóðhátið 2006, be ready for brynja!!! mæti í fullu fjöri og geri allt crazy!!! vonandi...ok, held ég sé búin...
...out!